Kominn ágætis tími frá síðustu færslu… enda veit ég svosem ekkert hvort einhver fylgist með þessu!
Ég allavega fór heim um jólin, vann lærði og fagnaði jólunum, og kom svo aftur hingað mánuði seinna. Ég er byrjuð að kenna (samanburðarstjórnmálafræði í þetta skiptið) og gengur bara ágætlega - 19 nemendur í öðrum bekknum, ekki nema 4 í hinum! Eða 6 skráðir, en það hafa aldrei mætt fleiri en fjórir. Svo það ætti að vera lítið mál… ja, eða meira, þar sem ég sjálf þarf að gera mun meira, frekar en að láta fyrirlestra og umræður nemendanna fylla upp í tímann.
Ég er í stjórnmálaheimspeki með Dr. Tully þessa önnina, og svo líka directed readings áfanga sem á að snúast um lokaritgerðina mína. Sá áfangi hefur farið frekar seint af stað, svo ætli ég þurfi ekki að vera dugleg og sjá um þessa hluti sjálf frekar en að bíða eftir að kennarinn segi mér hvað ég eigi að gera… ónei! taka ábyrgð! Hvernig skyldi það nú fara…
annars gengur allt bara ótrúlega vel. Ég er búin að eignast æðislega vini hérna, ekki bara í mínum bekk heldur líka búin að kynnast mastersnemunum á öðru ári betur, og slatta af doktorsnemunum líka. Eftir viku förum við í hike þar sem við ætlum að skoða risastórt tré, og viku seinna fer ég til NEW ORLEANS!!! Á ráðstefnu ISA, OG að fagna Mardi Gras. Nokkrum dögum áður en ég fer hefjast svo ólympíuleikarnir í næstu borg, og þeir halda svo áfram í næstum viku eftir að ég kem til baka. Mér finnst pínu leiðinlegt að nota fríið mitt í að fara í burtu þegar það er aldrei að vita nema það verði heilmikið að gerast í kringum ólympíuleikana… en ég vil samt ekki kvarta of mikið, því það verður örugglega frábært í New Orleans.
Svo vil ég bara benda öllum á að skoða þessa heimasíðu áður en þeir gera upp við sig hvað þeim finnst um ólympíuleikana í Vancouver og Whistler núna í næsta mánuði.
NO2010.COM
Jæja… ýmislegt hefur á dagana drifið síðan ég skrifaði hérna síðast! Ég fékk vikufrí og fór til Vancouver og Salt Spring Island, fór í Halloween partý sem goth Rauðhetta, hélt tvo fyrirlestra, skrifaði tvær ritgerðir, fór yfir svona 35, snéri sólarhringnum við… þetta venjulega, nema það er nýtt að hafa farið yfir ritgerðir. Er komin með alveg nýja virðingu fyrir þeim sem gera þetta reglulega.
Er líka búin að komast að því hvaða kúrs ég verð að kenna á næstu önn. Að sjálfsögðu er það eina undirgrein stjórnmálafræðinnar sem ég veit nákvæmlega ekkert um. Ég væri ágæt í stjórnmálaheimspeki, ágæt í alþjóðasamskiptum, gæti örugglega reddað mér í samanburðarstjórnmálum, en veit ekki neitt um kanadísk stjórnmál. En það er kúrsinn sem ég var sett í. Ég sem hlakkaði svo til að kenna sama kúrsinn aftur, væri svo miklu betur undirbúin! Plúsinn við þetta er að kennarinn er leiðbeinandinn minn, sem mér líkar mjög vel við. En það er víst ekkert við því að gera, ég verð bara að lesa bókina eins og nemendurnir.
Núna taka við nokkrir dagar af að pakka, kaupa jólagjafir, kveðja vini, klára ritgerðir, og svo fara heim! Lendi á mánudagsmorgun, og hlakka mikið til.
Læt hér fylgja nokkrar myndir af haustlitunum sem ég tók í gær.
jóga og skóli
Ég er núna búin að klára 30 daga áskorunina í jóga stúdíóinu mínu. Ég hef semsagt farið 30 sinnum í jóga á 30 dögum og stóðst þar með áskorunina. Hver tími er 90 mínútur í sirka 40°C heitum sal og 60% raka þar að auki. Er ég alveg svakalega stolt af sjálfri mér, sérstaklega þar sem ég hef aldrei verið neitt sérstaklega þekkt fyrir íþróttahæfileika mína eða dugnað á því sviði.
Fyrir utan jóga er ég eiginlega ekki búin að gera neitt nema læra í nokkrar vikur. Rétt kaupi smá mat þar sem matarbúðin er beint hinumegin við götuna hjá mér. Og þetta á bara eftir að versna! Alveg nóg að gera á næstunni… Þannig að núna ætla ég að hætta að blogga og fara að læra. 18 dagar í vikufrí og Írisi, þó ég efast um að það verði mikill tími fyrir frí :S
Í dag fór ég til Port Angeles, var þar í klukkutíma, og tók svo ferjuna til baka. Við að koma aftur inn í Kanada gat ég loksins fengið námsleyfið mitt, og má þar af leiðandi vera hérna og í skóla! Það er mjög gott.
Ég sá hnúfubak á leiðinni! Náði því miður engum myndum af honum, en það var mjög flott. Þegar ég kom út úr ferjunni þá náði stelpa tali af mér sem var í nákvæmlega sömu erindagjörðum - nema með vinnuleyfi. Við ákváðum að eyða þessum klukkutíma saman og spjölluðum svo í ferjunni á leiðinni til baka. Mjög fínt! Við náðum ekki að gera mikið á þessum klukkutíma en okkur tókst þó að sjá hversu Twilight æðið hefur náð að taka yfir svæðið… bærinn Forks sem sagan gerist í er vestast á Olympia skaganum, en það er allavega eitt atriði í fyrstu bókinni sem gerist í Port Angeles. Enda eru plaköt og dót til sölu allstaðar! Mig næstum því langar að fara til Forks bara til að sjá hvernig staðan er þar. En samt ekki. Enda eru þetta mestu ruslbækur sem frægar hafa orðið.
Það var rosalega gaman að sjá höfnina í Victoria frá þessu sjónarhorni og í heildina skemmti ég mér bara ágætlega! Mæli samt ekki með matnum um borð í ferjunni. Keypti mér pretzel á leiðinni til baka, tók einn bita og næstum kúgaðist. Það var peningasóun. En þannig er nú bara það!
lífið heldur áfram…
Þá er vika fjögur að byrja í skólanum. Ég byrjaði að kenna (teaching assistant) í síðustu viku og gekk bara vel, held ég! Það er samt hellings vinna að þurfa að mæta í tíma, lesa efnið og plana kennslustund fyrir heilan kúrs í viðbót við kúrsana sem ég er í. En ég fæ borgað fyrir þetta og það er alveg doldið gaman, svo ég reyni að kvarta ekki of mikið. Alveg þrælmerkilegt hvernig maður “kann” nokkurn veginn að vera allt í einu kominn fyrir framan nemendurna heldur en að vera einn þeirra… ætli maður hafi ekki séð þetta gert nógu oft? Ég þarf samt sem betur fer ekki að vita allt, og ekki samdi ég kúrsinn, heldur læt ég nemendurna aðallega tala sín á milli. Það er ágætt.
Annars er alveg nóg að gera við að lesa fyrir tímana mína - veit ekki alveg hvernig ég á að ná því og að skrifa ritgerðir á sama tíma. Þarf allavega betra skipulag en það sem ég er búin að vera að fylgja. Sérstaklega þar sem ég vil klára allar mínar ritgerðir snemma - því ég ætla að taka mér vikufrí í nóvember. Því hún Íris Ósk ætlar að koma að heimsækja mig í heila viku! Ég er orðin alveg frekar spennt, sko. Það er þriggja daga frí í skólanum, ég er alltaf í fríi á fimmtudögum og tímarnir á föstudeginum falla niður, svo ég hef heila viku lausa. Það verður eitthvað skemmtilegt brallað þá!
Veðrið er annars búið að vera alveg frábært. 25°C hiti í nokkra daga og mér tókst svoleiðis að taka lit - reyndar var hann að mestu leyti rauður í byrjun en er núna orðinn fallega brúnn. Núna er aðeins byrjað að kólna og fer ekki upp í nema 18°C yfir daginn, og maður þarf alveg peysu á kvöldin og snemma á morgnanna. Frekar skrítið að hugsa til þess að það hafi verið slydduregn heima og kominn snjór í fjöll! Það er sko aldeilis ekki hér.
Í fréttum annars er ekki mikið, ég er búin að kynnast fólkinu í prógramminu betur og er þetta fínasta fólk, jú og svo er ég búin að vera voða dugleg að fara í jóga. Tók þátt í 30 daga áskorun - ég semsagt á að fara 30 sinnum í jóga á þessum 30 dögum. Sex dagar búnir og ég bara búin að halda mig við það! og ekki nóg með það, heldur fór ég í tíma tvo daga áður en það byrjaði, svo ég er núna búin að fara í 90 mín jóga tíma 8 daga í röð. Geri aðrir betur!
Best að lesa aðeins meira áður en ég skríð upp í rúm…
Þá er ég búin að vera aðeins lengur í Kanada og skólinn að fara að komast í gang. Ég er núna á fullu við að reyna að lesa það sem ég þarf að lesa fyrir tímana mína, sem eru báðir á morgun. Svo byrjar kennslan í næstu viku… ég á samt sem betur fer ekki að “kenna” neitt, heldur bara leiða umræður. Held ég. Kemur vonandi í ljós fljótlega.
Ég eyddi helginni í margt, versla ýmislegt sem mig vantaði, klára að koma herberginu í stand og er það loksins orðið flott og fínt, njóta góða veðursins á ströndinni og niðri í bæ og læra, til dæmis. Ég endaði líka í málningarpartýi en þar sem ég vissi ekki að það var málningarpartý áður en ég lagði af stað var ég ekki í fötum sem mér var sama um og tók ég því lítinn þátt í málningarpartinum! Það snérist á endanum um að komast þaðan út án þess að fá klessur í fötin, og tókst það að mestu. Ég hef sett með nokkrar myndir frá ferðum mínum niður á strönd og svo niður í bæ þar sem höfnin er. Veðrið er búið að vera frábært undanfarið og hefur mig ekki langað neitt sérstaklega til að sitja inni og læra!
pé ess. Það lítur út fyrir að kommentakerfið sem ég setti inn virki ekki. Ég sé til hvort ég nenni að laga það við tækifæri.
testing testing
Er að reyna að setja inn komment á þetta blogg! vonum að þetta virki :)
annars er ég byrjuð í skólanum… á bara að taka fjóra áfanga í þessu prógrammi og þar af þurfa tveir að vera kjarnakúrsar, svo það er mjög takmarkað val en alveg fullt af áhugaverðum áföngum sem mig langar að taka! Er búin að skrá mig í fjóra fyrir vorönnina en má bara taka tvo og þar af einn kjarnakúrs… þetta verður áhugavert. Held samt ég sé búin að ákveða hvaða kúrsa ég tek núna í haust, alþjóðasamskipti verður kjarnakúrsinn minn og svo áfanga um minority rights and identity politics. Ég verð líka TA, eða aðstoðarkennari (teaching assistant) fyrir fyrsta árs kúrs í stjórnmálafræði en það byrjar ekki fyrr en eftir tvær vikur. Þannig að þetta byrjar létt! Kannski ágætt þar sem það er búið að spá mjög góðu veðri alla næstu viku, svo þá er ekki verra að þurfa bara að mæta í tíma einn dag í viku :) þó það sé nóg af fundum og námskeiðum og öðru…
Hérna koma nokkrar myndir úr ferðinni minni til Vancouver síðustu helgi!
Byrjaði á að taka tvo strætóa, eina ferju og tvo strætóa í viðbót til að komast niður í bæ í Vancouver. Þar hitti ég vinkonu mína Cass frá Ástralíu sem er í SFU (Simon Fraser University) í Vancouver. Við fengum okkur fyrst víetnamskan mat, gengum svo um og sáum ýmislegt, þ.á.m. gaur sem hefur eytt miklum tíma í að skreyta bílinn sinn, borðuðum rosa góð heimagerð súkkulaði og ræktaðar plómur. Svo þurfti Cass að fara aftur upp í skóla svo ég fór í Vancouver Art Gallery. Þar sá ég sýningu með verkum eftir Rembrandt og aðra hollenska málara sem var mjög flott, en enn flottari fannst mér sýningin með verkum eftir Emily Carr og Jack Shadbolt. Emily Carr er mjög fræg kanadísk listakona sem málaði mikið náttúruna hérna í British Columbia og indjánana sem hér búa.
Eftir listasafnið hitti ég vinkonu mína Sarah sem vinnur þar nálægt. Við tókum strætó heim til hennar og tókum því rólega um kvöldið. Næsta morgun byrjuðum við á því að fá okkur “brunch” og svo tókum við strætó niður í bæ. Við gengum í gegnum vesturenda Vancouver sem er vægast sagt flottur! Svo fórum við aðeins inn í Stanley Park og Vancouver Aquarium. Það var mjög gaman og sá ég hvali, sæotra, krókódíla, kóngafiðrildi, letidýr og fullt af fiskum, meðal annars.
Eftir þetta var kominn tími til að koma sér heim á leið. Við tókum strætó aftur inn í bæinn og þar skildu leiðir. Ég fór á sömu strætóstoppistöð og ég hafði verið á daginn áður og ætlaði að taka sama strætó í áttina að ferjunni, en var tjáð að sá strætó gengi ekki lengur! Ég komst ekki að því hvort það var bara þann daginn eða hvort hans síðasti dagur hefði verið daginn áður, en fékk í staðinn leiðbeiningar um hvernig ætti að komast á næstu lestarstöð, eða Sky Train. Hana tók ég í staðinn á sömu stoppistöð og var það örugglega fljótlegra. Svo annan strætó út á ferjustæði. Eftir ferjuna tóku tveir strætóar í viðbót við og var ég svo loksins komin heim. En í ferjunni var tilkynnt yfir hátalarakerfið að hvalavaða væri að fylgja skipinu! Svo ég þaut út og tókst að ná nokkrum myndum af hvölum sem voru að synda í kringum okkur. Frekar flott!
aaargh! Var búin að skrifa alveg heilan helling en ýtti svo óvart á back!! Jæja, þá verður þetta bara prufupóstur í staðinn…