Ævintýri í Kanadalandi

Hérna koma nokkrar myndir úr ferðinni minni til Vancouver síðustu helgi!

Byrjaði á að taka tvo strætóa, eina ferju og tvo strætóa í viðbót til að komast niður í bæ í Vancouver. Þar hitti ég vinkonu mína Cass frá Ástralíu sem er í SFU (Simon Fraser University) í Vancouver. Við fengum okkur fyrst víetnamskan mat, gengum svo um og sáum ýmislegt, þ.á.m. gaur sem hefur eytt miklum tíma í að skreyta bílinn sinn, borðuðum rosa góð heimagerð súkkulaði og ræktaðar plómur. Svo þurfti Cass að fara aftur upp í skóla svo ég fór í Vancouver Art Gallery. Þar sá ég sýningu með verkum eftir Rembrandt og aðra hollenska málara sem var mjög flott, en enn flottari fannst mér sýningin með verkum eftir Emily Carr og Jack Shadbolt. Emily Carr er mjög fræg kanadísk listakona sem málaði mikið náttúruna hérna í British Columbia og indjánana sem hér búa.

Eftir listasafnið hitti ég vinkonu mína Sarah sem vinnur þar nálægt. Við tókum strætó heim til hennar og tókum því rólega um kvöldið. Næsta morgun byrjuðum við á því að fá okkur “brunch” og svo tókum við strætó niður í bæ. Við gengum í gegnum vesturenda Vancouver sem er vægast sagt flottur! Svo fórum við aðeins inn í Stanley Park og Vancouver Aquarium. Það var mjög gaman og sá ég hvali, sæotra, krókódíla, kóngafiðrildi, letidýr og fullt af fiskum, meðal annars.

Eftir þetta var kominn tími til að koma sér heim á leið. Við tókum strætó aftur inn í bæinn og þar skildu leiðir. Ég fór á sömu strætóstoppistöð og ég hafði verið á daginn áður og ætlaði að taka sama strætó í áttina að ferjunni, en var tjáð að sá strætó gengi ekki lengur! Ég komst ekki að því hvort það var bara þann daginn eða hvort hans síðasti dagur hefði verið daginn áður, en fékk í staðinn leiðbeiningar um hvernig ætti að komast á næstu lestarstöð, eða Sky Train. Hana tók ég í staðinn á sömu stoppistöð og var það örugglega fljótlegra. Svo annan strætó út á ferjustæði. Eftir ferjuna tóku tveir strætóar í viðbót við og var ég svo loksins komin heim. En í ferjunni var tilkynnt yfir hátalarakerfið að hvalavaða væri að fylgja skipinu! Svo ég þaut út og tókst að ná nokkrum myndum af hvölum sem voru að synda í kringum okkur. Frekar flott!

Comments