Þá er vika fjögur að byrja í skólanum. Ég byrjaði að kenna (teaching assistant) í síðustu viku og gekk bara vel, held ég! Það er samt hellings vinna að þurfa að mæta í tíma, lesa efnið og plana kennslustund fyrir heilan kúrs í viðbót við kúrsana sem ég er í. En ég fæ borgað fyrir þetta og það er alveg doldið gaman, svo ég reyni að kvarta ekki of mikið. Alveg þrælmerkilegt hvernig maður “kann” nokkurn veginn að vera allt í einu kominn fyrir framan nemendurna heldur en að vera einn þeirra… ætli maður hafi ekki séð þetta gert nógu oft? Ég þarf samt sem betur fer ekki að vita allt, og ekki samdi ég kúrsinn, heldur læt ég nemendurna aðallega tala sín á milli. Það er ágætt.
Annars er alveg nóg að gera við að lesa fyrir tímana mína - veit ekki alveg hvernig ég á að ná því og að skrifa ritgerðir á sama tíma. Þarf allavega betra skipulag en það sem ég er búin að vera að fylgja. Sérstaklega þar sem ég vil klára allar mínar ritgerðir snemma - því ég ætla að taka mér vikufrí í nóvember. Því hún Íris Ósk ætlar að koma að heimsækja mig í heila viku! Ég er orðin alveg frekar spennt, sko. Það er þriggja daga frí í skólanum, ég er alltaf í fríi á fimmtudögum og tímarnir á föstudeginum falla niður, svo ég hef heila viku lausa. Það verður eitthvað skemmtilegt brallað þá!
Veðrið er annars búið að vera alveg frábært. 25°C hiti í nokkra daga og mér tókst svoleiðis að taka lit - reyndar var hann að mestu leyti rauður í byrjun en er núna orðinn fallega brúnn. Núna er aðeins byrjað að kólna og fer ekki upp í nema 18°C yfir daginn, og maður þarf alveg peysu á kvöldin og snemma á morgnanna. Frekar skrítið að hugsa til þess að það hafi verið slydduregn heima og kominn snjór í fjöll! Það er sko aldeilis ekki hér.
Í fréttum annars er ekki mikið, ég er búin að kynnast fólkinu í prógramminu betur og er þetta fínasta fólk, jú og svo er ég búin að vera voða dugleg að fara í jóga. Tók þátt í 30 daga áskorun - ég semsagt á að fara 30 sinnum í jóga á þessum 30 dögum. Sex dagar búnir og ég bara búin að halda mig við það! og ekki nóg með það, heldur fór ég í tíma tvo daga áður en það byrjaði, svo ég er núna búin að fara í 90 mín jóga tíma 8 daga í röð. Geri aðrir betur!
Best að lesa aðeins meira áður en ég skríð upp í rúm…