Ævintýri í Kanadalandi

Í dag fór ég til Port Angeles, var þar í klukkutíma, og tók svo ferjuna til baka. Við að koma aftur inn í Kanada gat ég loksins fengið námsleyfið mitt, og má þar af leiðandi vera hérna og í skóla! Það er mjög gott.

Ég sá hnúfubak á leiðinni! Náði því miður engum myndum af honum, en það var mjög flott. Þegar ég kom út úr ferjunni þá náði stelpa tali af mér sem var í nákvæmlega sömu erindagjörðum - nema með vinnuleyfi. Við ákváðum að eyða þessum klukkutíma saman og spjölluðum svo í ferjunni á leiðinni til baka. Mjög fínt! Við náðum ekki að gera mikið á þessum klukkutíma en okkur tókst þó að sjá hversu Twilight æðið hefur náð að taka yfir svæðið… bærinn Forks sem sagan gerist í er vestast á Olympia skaganum, en það er allavega eitt atriði í fyrstu bókinni sem gerist í Port Angeles. Enda eru plaköt og dót til sölu allstaðar! Mig næstum því langar að fara til Forks bara til að sjá hvernig staðan er þar. En samt ekki. Enda eru þetta mestu ruslbækur sem frægar hafa orðið.

Það var rosalega gaman að sjá höfnina í Victoria frá þessu sjónarhorni og í heildina skemmti ég mér bara ágætlega! Mæli samt ekki með matnum um borð í ferjunni. Keypti mér pretzel á leiðinni til baka, tók einn bita og næstum kúgaðist. Það var peningasóun. En þannig er nú bara það!