Ævintýri í Kanadalandi
jóga og skóli

Ég er núna búin að klára 30 daga áskorunina í jóga stúdíóinu mínu. Ég hef semsagt farið 30 sinnum í jóga á 30 dögum og stóðst þar með áskorunina. Hver tími er 90 mínútur í sirka 40°C heitum sal og 60% raka þar að auki. Er ég alveg svakalega stolt af sjálfri mér, sérstaklega þar sem ég hef aldrei verið neitt sérstaklega þekkt fyrir íþróttahæfileika mína eða dugnað á því sviði.

Fyrir utan jóga er ég eiginlega ekki búin að gera neitt nema læra í nokkrar vikur. Rétt kaupi smá mat þar sem matarbúðin er beint hinumegin við götuna hjá mér. Og þetta á bara eftir að versna! Alveg nóg að gera á næstunni… Þannig að núna ætla ég að hætta að blogga og fara að læra. 18 dagar í vikufrí og Írisi, þó ég efast um að það verði mikill tími fyrir frí :S